Frá 1969
Rætur Réttar má rekja til ársins 1969 þegar Ragnar Aðalsteinsson stofnaði lögmannsstofu sína.
Meðeigendur Ragnars í Rétti eru Sigurður Örn Hilmarsson, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, Védís Eva Guðmundsdóttir og Kári Hólmar Ragnarsson. Allt frá stofnun stofunnar hefur áhersla verið lögð á framgang réttarins með manngildishugsjón að leiðarljósi og veitir Réttur þannig fólki og félögum alhliða þjónustu í sókn og vörn réttinda sinna.
Hugmyndafræðilegur grundvöllur Réttar er óbreyttur frá árdögum Ragnars Aðalsteinssonar í sjálfstæðri lögmennsku, þ.e. að lögmaðurinn gegni hlutverki bæði sem þjónn og verndari réttarins, ekki síst hvað varðar hagsmunagæslu fyrir almenning gagnvart sérhagsmunum, stórfyrirtækjum og ríkisvaldi.
Eigendur stofunnar deila þeirri hugsjón að það séu grundvallarréttindi alls fólks að vera jafnt fyrir lögum og hafa aðgang að vandaðri þjónustu til þess að þekkja lögbundinn rétt sinn og standa á honum. Réttur veitir faglega og vandaða ráðgjöf á flestum sviðum lögfræðinnar. Stofan aðstoðar bæði innlend og erlend fyrirtæki, einstaklinga, félög, félagasamtök, stofnanir og sveitarfélög.
Hugsjón Réttar
Réttlæti og mannvirðing
Réttur byggir á hugsjón um réttlæti og mannvirðingu og stendur vörð um mannréttindi borgaranna óháð kyni, trú, efnahag, skoðunum, þjóðerni eða stöðu þeirra að öðru leyti.
Sjálfstæð lögmennska
Lögmaðurinn gegnir hlutverki bæði sem þjónn og verndari réttarins, ekki síst hvað varðar hagsmunagæslu fyrir almenning gagnvart sérhagsmunum, stórfyrirtækjum og ríkisvaldi.
Jöfn staða fyrir lögum
Það eru grundvallarréttindi alls fólks að vera jafnt fyrir lögum og hafa aðgang að vandaðri þjónustu til þess að þekkja lögbundinn rétt sinn og standa á honum.
Vönduð fagleg ráðgjöf
Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu af málflutningi og búa yfir sérhæfingu á fjölmörgum réttarsviðum, allt frá mannréttindum til fjármuna- og fyrirtækjaréttar.
Vantar þig ráðgjöf?
Réttur veitir faglega og vandaða ráðgjöf til einstaklinga, innlendra og erlendra fyrirtækja, félagasamtaka og sveitarfélaga.
Fyrsta viðtal er án endurgjalds. Hafðu samband við okkur til að ræða málið.
Hafa samband

